Magnús Ingi Jónsson
Forseti bæjarstjórnar og sérfræðingur í fiskeldi hjá Matvælastofnun.

Magnús Ingi Jónsson situr í 2. sæti K-lista MMM.
Magnús Ingi Jónsson heiti ég og skipa 2. sæti á lista Máttar meyja og manna í Bolungarvík. Ég er með BS gráðu í Ferðamála- og markaðsfræðum frá Háskóla Íslands og diplómanám í viðburðastjórnun frá Háskólanum á Hólum og í Opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. Ég er einnig með mastersgráðu í forystu og stjórnun með áherslu á mannauðsstjórnun frá Haskólanum á Bifröst. Ég starfa sem sérfræðingur í fiskeldi hjá Matvælastofnun en var áður hjá þjónustudeild Vegagerðarinnar á Ísafirði.
Á núverandi kjörtímabili hef ég setið sem forseti bæjarstjórnar, aðalmaður í bæjarráði og varaformaður umhverfismálaráðs en kjörtímabilið þar á undan sat ég í bæjarstjórn, sem formaður menningar- og ferðamálaráðs og varamaður í umhverfismálaráði. Ég er virkur í félagsstörfum á svæðinu og sit í stjórnum Heilsubæjarins Bolungarvíkur, Sjálfsbjargar í Bolungarvík, Skógræktarfélagi Bolungarvíkur og er virkur meðlimur í bæði Björgunarsveitinni Erni og slysavarnadeildinni Ásgerði.
Ég er borinn og barnfæddur bolvíkingur, yngsti sonur Jóns Sveinssonar og Ingibjargar Bjarnadóttur. Sambýliskona mín er Annika Behnsen og saman eigum við Lilju Salóme Behnsen og Bjarna Finn Behnsen.
Helstu áherslumál mín snúa að umhverfis- og skipulagsmálum, samþættingu fjölmenningarsamfélagsins, betri ásýnd bæjarins og samvinnu og samtali við bæjarbúa.
Mínir helstu kostir eru vinnusemi, gott skipulag og að vilja hafa hreint og fínt í kringum mig, Ég tek hlutunum ekki of alvarlega og reyni að draga fram það jákvæða og góða í bæði málefnum og fólki. Ég á mjög auðvelt með samvinnu með svo til hverjum sem er og er alltaf opinn fyrir því að hlusta á skoðanir annarra.
