Rebekka Líf Karlsdóttir
Tannsmiður

Rebekka Líf Karlsdóttir situr í 3. sæti á K-lista MMM
Ég er uppalin í Bolungarvík, dóttir Kalla Gunn heitins og Laugu Bern. Hér á ég mínar rætur og hér vil ég vera. Ég er móðir þriggja barna á leik- og grunnskólaaldri og flutti aftur heim árið 2021. Árið 2022 stofnaði ég ásamt Katrínu Uglu Vesturbros þar sem sex manns starfa í dag og hefur starfsemin aukið fjölbreytileika starfa á svæðinu. Ég er mikil félagsvera og nýt mín best þegar líf og fjör er í kringum mig. Ég er lánsöm að eiga sterkan vinahóp og stóra fjölskyldu hér og tek virkan þátt í samfélaginu. Ég hef setið í umhverfismálaráði sl. 4 ár og líkað það afar vel. Ég er formaður sunddeildar UMFB og eitt þeirra foreldra sem stóðu að stofnun Vinir Gamla Róló. Ég er samviskusöm og framtakssöm og læt verkin tala. Ég trúi því að mannauðurinn í bænum sé okkar sterkasta afl og að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn á svo sannarlega við hér. Fyrir mér er Bolungarvík ekki bara staður, þetta er heimilið mitt og samfélag sem skiptir mig svo gríðarlega miklu máli. Ég brenn fyrir jöfnum tækifærum allra barna og legg áherslu á að þau hafi öll aðgang að góðri menntun, íþróttum og öruggu umhverfi. Ég vil styðja fjölskyldur, styrkja nærsamfélagið og vinna að betri framtíð allra í sveitarfélaginu. Einnig legg ég ríka áherslu á að bæta aðgengi að upplýsingum og þjónustu fyrir íbúa af erlendum uppruna og stuðla að virkari þátttöku þeirra í samfélaginu.
