Máttur meyja og manna
Stefnuskrá fyrir kosningarnar 2026
Atvinnumál
-
Útfæra rýmið í ráðhúsinu betur svo það nýtist undir fleiri skrifstofur.
-
Styðja við alla atvinnuuppbyggingu og deiliskipuleggja fleiri lóðir fyrir fjölbreytta atvinnustarfsemi.
-
Þróa áframhaldandi sumarvinnu ungmenna í samvinnu við atvinnulíf í bænum.
-
Stuðla að því að opinberum störfum á vegum ríkisins fjölgi í sveitarfélaginu og staðinn verði vörður um þau störf sem þegar eru staðsett hér.
Hafnarmál
-
Fylgja eftir þeim tillögum sem komu fram í skýrslunni “Ný framtíðarsýn fyrir Bolungarvíkurhöfn”.
-
Styðja við fjölbreytta starfsemi á hafnarsvæðinu.
-
Bæta aðgengi að raforku á hafnarsvæðinu.
-
Fjölga viðleguplássum við hafnarkanta og flotbryggjur m.a. með endurnýjun og lengingu flotbryggja í samráði við hagsmunaaðila.
-
Tryggja öryggi á hafnarsvæði, m.a. með stýrðum aðgangi að flotbryggjum.
-
Þrýsta á stjórnvöld að efla Hafnabótasjóð með það að markmiði að flýta framkvæmdum á Samgönguáætlun.
Íbúalýðræði og gegnsæi
-
Halda reglulega íbúafundi svo íbúar séu upplýstir um málefni sveitarfélagsins.
-
Gera gögn aðgengilegri á heimasíðu sveitarfélagsins og efla upplýsingagildi fundargerða.
-
Innleiða reglulegar þjónustukannanir meðal íbúa til að meta gæði þjónustu.
-
Fleiri upplýsingafundir með kjörnum fulltrúum.
Umhverfismál
-
Efla umferðaröryggi með umferðaröryggisáætlun.
-
Sveitarfélagið verði fordæmisgefandi í snyrtimennsku og umhirðu grænna svæða og lögð áhersla á aukinn gróður.
-
Koma á fót árlegum umhverfisverðlaunum þar sem íbúar og fyrirtæki eru hvött til þátttöku í betri ásýnd bæjarins.
-
Útbúa áætlun til framtíðar um hvernig hreinsa á skólp frá sveitarfélaginu svo það renni ekki óhindrað út í sjó.
-
Setja sorpmálin á oddinn. Bæta flokkun sorps, draga úr urðun eins mikið og hægt er og vinna lífrænan úrgang í heimabyggð.
-
Fjölga ruslatunnum á grænum svæðum.
-
Setja upp tvær grenndargámastöðvar á opnum svæðum í þéttbýli.
-
Klára vinnu við göngustíg meðfram smábátahöfn og áfram yfir Sandinn og inn í Ósvör.
-
Endurskoða deiliskipulag á Hóli.
-
Hefja undirbúning við deiliskipulagningu næsta íbúðahverfis til að tryggja lóðaframboð til uppbyggingar til framtíðar.
-
Borið ofan í göngustíga við snjóflóðagarða eða þeir heflaðir.
-
Halda aftur af ágengum tegundum í sveitarfélaginu.
Velferðarmál
-
Bæta aðgengi íbúa að upplýsingum um réttindi sín varðandi félagsþjónustu.
-
Tryggja betra aðgengi hreyfihamlaðra að stofnunum sveitarfélagsins.
-
Klára vinnu við sólhúsið á annarri hæð Hvíta hússins.
-
Endurnýja þakstál á Hvíta húsinu.
-
Útbúa stefnu í málefnum eldri borgara sem styður það að fólk geti búið lengur heima.
-
Þrýsta á ríkið að nýta húsnæði Sjúkraskýlisins betur í samstarfi við sveitarfélagið.
Menningarmál og ferðaþjónusta
-
Finna leiðir til að nýta Félagsheimilið betur til viðburðahalds og eflingar félagsauðs.
-
Byggja upp þjónustuaðstöðu bæði í Ósvör, á Bolafjalli eða á Skálavíkurheiði.
-
Bæta þjónustu við ferðamenn með upplýsingaskiltum, QR kóðum og móttökuplani við aðkomu inn í sveitarfélagið.
-
Stækka tjaldsvæði og bæta aðstöðu með meira skjóli, fleiri rafmagnstenglum, borðum og bekkjum.
-
Kanna möguleika á uppsetningu listaverka í bænum með það að markmiði að auka listræna ásýnd og litbrigði bæjarins.
-
Taka vel í allar hugmyndir sem eflt geta menningu og ferðaþjónustu í sveitarfélaginu.
-
Tryggðar verði endurbætur og viðhald á Bolafjallsvegi í samræmi við fyrirliggjandi framkvæmdaáætlun.
Fræðslu-, íþrótta- og æskulýðsstarf
-
Frístundastyrkur verði hækkaður úr 40.000 í 60.000 á ári og helmingur upphæðarinnar fáist til úthlutunar á hvorri önn.
-
Kanna möguleika á því að koma upp öflugri skólaskrifstofu í samráði við sveitarfélögin á Vestfjörðum.
-
Endurnýja leiktæki á lóð grunnskólans.
-
Klæða grunnskólann að utan og leggja drenlagnir til að koma í veg fyrir rakamyndun.
-
Tryggja að forráðamenn og ungmenni viti af rétti sínum til að sækja um frístundastyrk.
-
Kanna möguleika á því að koma á fót frístundastyrk fyrir eldri borgara og efla félagsstarf eldri borgara.
-
Tryggja að börn fái leikskólapláss frá eins árs aldri.
-
Styðja betur við máltileinkun barna með íslensku sem annað mál.
-
Auka samstarf og samvinnu við nærliggjandi sveitarfélög um uppbyggingu íþróttamannvirkja.
-
Klára útileiksvæði og frágang framkvæmda við leikskólann Glaðheima.
-
Halda áfram að þróa stefnu um viðhald og framtíðaruppbyggingu í Musteri vatns og vellíðunar.
-
Skoða framtíðarmöguleika með breyttum rekstri bókasafns Bolungarvíkur
-
Leita leiða til endurnýjunar búningsaðstöðu við fótboltavöllinn á Skeiði.
-
Finna málefnum akstursíþróttagreina farsælan farveg.
Stjórnsýsla
-
Greina hvort þörf sé fyrir mannauðsstjóra hjá sveitarfélaginu til þess að halda betur utan um starfsmannamálin og efla mannauðinn.
-
Koma á fót reglulegum sameiginlegum forstöðumannafundum til að bæta upplýsingaflæði og samræma rekstur sveitarfélagsins.
-
Auka samvinnu milli stofnana sveitarfélagsins til að bæta þjónustu og hagkvæmni í rekstri.
-
Sveitarfélagið setji sér tungumálastefnu.
Íbúar Bolungarvíkur
-
Hlutast til um að frekari uppbygging óhagnaðardrifins leiguhúsnæðis eigi sér stað í sveitarfélaginu.
-
Bæta móttöku nýrra íbúa með skýrum og greinargóðum upplýsingum.
-
Efla samþættingu fjölmenningarsamfélagsins.
-
Vinna markvisst að auknu raforkuöryggi á Vestfjörðum.
-
Ýta á þjónustufyrirtæki að bæta farsímasamband í sveitarfélaginu.
-
Bæta aðstöðu fyrir slökkviliðið með endurnýjun tækjakosts og búnaðar
-
Þrýsta á Vegagerðina að vinna að úrbótum á bæði Syðridalsvegi og Skálavíkurvegi með það að markmiði að lagt verði bundið slitlag á vegina.
-
Tryggja að allt neysluvatn komi úr borholum og hætt verði að nota yfirborðsvatn.
-
Ábyrg fjármálastjórnun með gegnsæi að leiðarljósi.
-
Halda aftur af hækkunum á fasteignaskatti á íbúðarhúsnæði.
-
Bjóða út þjónustuverkefni til að auka hagkvæmni í rekstri.
-
Endurskoða reglulega samninga við félagasamtök.
-
Nýta möguleika í opinberu sjóðakerfi og vera virk að sækja fjármagn til verkefna og uppbyggingar í sveitarfélaginu.
-
Lækka skuldahlutfall sveitarfélagsins án þess að hafa áhrif á þjónustu við íbúa.
-
Útbúa hnitmiðaða langtímaáætlun um viðhald eigna bæjarins.
-
Athuga möguleikann á innleiðingu orkusparandi lausna eins og t.d. uppsetningu varmadæla við stofnanir sveitarfélagsins.
-
Leita eftir samstarfi við nærliggjandi sveitarfélög varðandi sameiginleg útboð um framkvæmd stærri verkefna eins og malbikunar.
Fjármálastjórnun
Þetta er enginn loforðalisti
Þetta eru hugmyndir MMM um það hvernig bæta megi lífskjör íbúa, auka ánægju þeirra og samheldni, styrkja atvinnulíf og tryggja gegnsæi í stjórnsýslunni. Hugmyndirnar kvikna með samtali og samvinnu frambjóðenda og íbúa. Með auknum samræðum við íbúa eru mun meiri líkur á því að hámarksárangur náist í verkefnum sveitarfélagsins.
Máttur meyja og manna
Stefnuskrá fyrir kosningarnar 2022
Atvinnumál
-
Með nýju atvinnumálaráði eigum við að vera leiðandi í atvinnuuppbyggingu og taka vel á móti nýjum hugmyndum.
-
Styðja við Djúpið, nýsköpunar- og samfélagsmiðstöð.
-
Vera upplýst um sjóði sem einstaklingar geta sótt um til atvinnuuppbyggingar.
-
Frumkvöðlaverðlaun/styrkir fyrir nýjungar í atvinnumálum
-
Tengja sumarvinnu ungmenna og atvinnulífið til að opna á möguleika þeirra á vinnumarkaði.
-
Byggja upp hafnaraðstöðu fyrir hafsækna atvinnustarfsemi
-
Klára ljósleiðaratengingu heimila og fyrirtækja í Bolungarvík.
-
Standa vörð um náttúrustofu.
Fjármálastjórnun
-
Ábyrg fjármálastjórnun með gegnsæi að leiðarljósi.
-
Nýta möguleika í opinberu sjóðakerfi og vera virk við að sækja fjármagn til verkefna og uppbyggingar.
-
Hafa það að stefnu að lækka skuldahlutfall sveitarfélagsins án þess að það komi niður á þjónustunni við bæjarbúa.
Íbúalýðræði og gagnsæi
-
íbúafundir haldnir einu sinni á ári, þar sem íbúar eru upplýstir.
-
Að bæjarfulltrúar hafi fasta viðverutíma í ráðhúsi Bolungarvíkur til að auka samtalið á milli kjörinna fulltrúa og bæjarbúa.
Umhverfismál
-
Móta umhverfisstefnu fyrir sveitarfélagið m.t.t. ásýndar og fegrunar bæjarins.
-
Framtíðarskipulag um viðhald og lagfæringar á götum og gangstéttum.
-
Fjölga ruslatunnum á opnum svæðum í sveitarfélaginu.
-
Taka til skoðunar hámarkshraða í sveitarfélaginu, sérstaklega í þeim götum sem menntastofnanir standa við.
-
Að gera regluverk í kringum umhverfis- og skipulagsmál skýrari og aðgengilegri á heimasíðu bæjarins.
-
Skipuleggja og hanna opin svæði sem íbúar geta nýtt til frístunda eins að bjóða íbúum að taka opin svæði í fóstur.
-
Viðhaldsáætlun fasteigna - gera opinbera áætlun sem birt er á heimasíðu bæjarins.
-
Settar verði upp orkusparandi varmadælur í stofnanir bæjarins.
Velferðar- og heilbrigðismál
-
Að sveitarfélagið taki fullan þátt í innleiðingu farsældarfrumvarps barnamálaráðherra með því að fara yfir öll þau úrræði sem börnum og fjölskyldum þeirra eiga að standa til boða.
-
Ráða fagaðila sem hefur viðveru í grunnskólanum og styður við andlega heilsu barna og ungmenna.
-
Tryggja viðveru læknis og heilsugæslu í sveitarfélaginu.
-
Auka aðgengi fatlaðra að stofnunum sveitarfélagsins.
-
útbúa þarf stefnu sem snýr að málefnum eldri borgara og veita þjónustu til að eldra fólk geti búið í eigin húsnæði eins lengi og það kýs.
Menningarmál og ferðaþjónusta
-
Að móta ferðaþjónustustefnu fyrir Bolungarvík.
-
Að Bolungarvík verði eftirsóttur staður fyrir ferðamenn að heimsækja, bæði innlenda sem erlenda.
-
Stækka og efla tjaldsvæðið við sundlaugina svo fleiri geti nýtt sér aðstöðuna.
-
Leggja göngustíg á bakkanum ofan við fjöruna frá höfninni og að Ósvör.
-
Sjá til þess að náttúrugripasafnið verði sett upp og opnað á ný.
-
Sótt um í opinbera sjóði til að byggja upp aðstöðu fyrir ferðamenn við sjóminjasafnið í Ósvör.
-
Taka vel í hugmyndir og styðja við nýja menningarviðburði í sveitarfélaginu.
Fræðslu-, íþrótta- og æskulýðsstarf
-
Leggja áherslu á forvarnir og heilsueflandi fræðsluefni.
-
Að tryggja foreldrum barna leikskólapláss við eins árs aldur.
-
Styðja betur við máltileinkun barna með íslensku sem annað mál.
-
Styðja við og efla fjölbreytni í íþrótta- og æskulýðsstarfsemi ungmenna.
-
Móta framtíðarstefnu sundlaugarsvæðisins m.t.t. sístækkandi sundfélags og fjölgun sundgesta í "Musteri vatns og vellíðunar".
-
Auka samstarf og samvinnu við nærliggjandi sveitarfélög um uppbyggingu íþróttamannvirkja.
Stjórnsýsla
-
Efla nefndir bæjarins og hvetja bæjarráð til þess að deila verkefnum frekar til nefnda.
-
Auka samstarf við nærliggjandi sveitarfélög og samnýta aðstöðu og þjónustu eins og kostur er.
-
Gott aðgengi forstöðumanna að kjörnum fulltrúum sveitarfélagsins með föstum fundum.
-
Stofna eldri borgararáð innan sveitarfélagsins sem fara myndi með málefni þeirra.
Íbúar Bolungarvíkur
-
Efla móttöku nýrra íbúa með aðgengilegri upplýsingum á heimasíðu bæjarins.
-
Að fyrirtæki og sveitarfélagið séu í samstarfi þegar erlendir íbúar flytji til Bolungarvíkur.
-
Að stuðla að aukinni samþættingu fjölmenningarsamfélagsins í Bolungarvík.
-
Bæklingur með upplýsingum um grunnþjónustu bæjarins sem nýjir íbúar geta nýtt sér.
-
Standa vörð um brunavarnir og slökkviliðsmál í sveitarfélaginu.
-
Þrýsta á símafyrirtækin að bæta farsímasamband í sveitarfélaginu.
-
Stórbæta vatnsöflun frá borholum sem mun veita íbúum hreinna vatn til neyslu sem og fyrirtækjum til framleiðslu.
Þetta er enginn loforðalisti
Þetta eru hugmyndir MMM um það hvernig bæta megi lífskjör íbúa, auka ánægju þeirra og samheldni, styrkja atvinnulíf og tryggja gegnsæi í stjórnsýslunni. Hugmyndirnar kvikna með samtali og samvinnu frambjóðenda og íbúa. Með auknum samræðum við íbúa eru mun meiri líkur á því að hámarksárangur náist í verkefnum sveitarfélagsins.
Máttur meyja og manna
Stefnuskrá fyrir kosningarnar 2018
Atvinnumál
Endurvekja atvinnumálaráð og móta atvinnustefnu til framtíðar
Standa vörð um þau störf, fyrirtæki og stofnanir sem fyrir eru í sveitarfélaginu
Stuðla að fjölgun opinberra starfa í sveitarfélaginu
Frumkvöðlaverðlaun/styrkir fyrir nýjungar í atvinnumálum
Að vera leiðandi í aðstöðusköpun vegna nýrra atvinnutækifæra
Byggja upp hafnaraðstöðu fyrir hafsækna atvinnustarfsemi
Auka samstarf sveitarfélagsins við þjónustustofnanir atvinnulífsins
Lögð áhersla á ljósleiðaratengingu stofnana, fyrirtækja og heimila
Móta fjölbreyttari leiðir í sumarvinnu ungmenna m.a. með fræðslu, skapandi starfi og atvinnuþátttöku
Fjármálastjórnun
Ábyrg fjármálastjórnun og áætlun um lækkun skulda
Forstöðumenn stofnana verði virkir þátttakendur í fjárhagsáætlanagerð
Nýta möguleika í opinberu sjóðakerfi, bæði innlendu og erlendu
Gera viðhaldsáætlun fyrir fasteignir bæjarins
Íbúalýðræði og gagnsæi
Samráðsfundir með forstöðumönnum stofnana verði reglulegir
Gefa íbúum tækifæri til að kjósa um ákvarðanatöku í stórum málum og/eða um forgangsröðun verkefna
Vinna að þeim hugmyndum sem fást með átakinu Betri Bolungarvík
Virkni íbúa í stjórnsýslu aukin með skipulögðum íbúafundum
Efla upplýsingastreymi til bæjarbúa með virkni á samfélagsmiðlum og greinagóðum fundargerðum þar sem það á við
Umhverfismál
Móta umhverfisstefnu fyrir sveitarfélagið
Stuðla að betri ásýnd bæjarins með aukinni þátttöku íbúa
Umhverfishönnun á Aðalstræti og gera íbúavænan miðbæ
Vinna að orkusparandi verkefnum og umhverfisvænum leiðum til orkuframleiðslu
Gera áætlun um úrbætur í frárennslismálum, sorphirðu og þjónustutíma gámasvæðis
Velferð og heilbrigði
Veita þjónustu til að eldra fólk geti búið í eigin húsnæði eins lengi og það kýs
Koma á dagvistun fyrir lífeyrisþega
Gera öryggisáætlun sem tryggir aðgengi að læknis-/hjúkrunarþjónustu við þær aðstæður þegar vegasamgöngur lokast
Vinna að fjölbreyttum atvinnutækifærum fyrir einstaklinga með skerta starfsgetu
Gera áætlun um styttingu vinnuviku starfsmanna bæjarins
Samgöngur og ferðaþjónusta
Almenningssamgöngur á milli sveitarfélaga
Bæta aðstöðu og upplýsingastreymi til ferðamanna
Efla menningartengda ferðaþjónustu og uppbyggingu heilsársferðaþjónustu
Bæta aðgengi fyrir hjólreiðamenn og gangandi vegfarendur
Vinna að úttekt á aðgengi fatlaðra og gerð áætlunar um betrumbætur
Fræðslumál
Móta framsækna fræðslustefnu fyrir alla aldurshópa
Auðvelda menntastofnunum kennslu list- og verkgreina, nýsköpunar- og tæknigreina
Styðja erlent samstarf menntastofnana
Tryggja leikskólavist frá því að fæðingarorlofi foreldra lýkur
Leggja áherslu á lýðheilsumarkmið og forvarnir
íþrótta- og æskulýðsstarf
Móta stefnu með öðrum sveitarfélögum við Djúp um uppbyggingu íþróttamannvirkja
Auka fjölbreytni í íþrótta- og félagsstarfi með aðstöðusköpun
Búa vel um félags- og tómstundastarf grunnskólanemenda
Hesthúsabyggð verði skipulögð á nýju svæði
Hækka frístundastyrki til að jafna aðgang nemenda að frístundanámi óháð efnahag og kynna þá betur fyrir bæjarbúum
Ungt fólk og meira af nýjum íbú(ð)um
Skipuleggja fleiri byggingalóðir í bæjarlandinu og auglýsa þær lóðir sem eru lausar nú þegar
Vera með góðar upplýsingar fyrir nýja íbúa um þjónustu, félags- og tómstundastarf í sveitarfélaginu
Vinna markvisst að því að fjölga atvinnutækifærum sem henta ungu fólki
Stuðla að samstarfs- og samræðuvettvangi nýrra íbúa, bæði innlendra og erlendra
Helstu nefndir eigi tvisvar á ári fundi með fulltrúum ungmennaráðs
Menningarmál
Vinna markvisst að því að byggja brú á milli menningarhópa og styrkja stoðir fjölmenningarsamfélagsins Bolungarvíkur
Standa vörð um bolvískan menningararf með varðveislu húsa, fornminja og sagna
Styðja við þróun safna/sögusýninga bæði eldri og nýrra
Auðvelda og hvetja íbúa til að standa fyrir menningarviðburðum og skrá í rafrænt menningar- og viðburðadagatal
Koma á vinabæjarsamstarfi við sveitarfélag í Norður Noregi/Hálogalandi
