top of page
5-Rebekka.jpg

Farsæld og framtíð

Bolungarvík er lítið samfélag með stórt hjarta og skýra framtíðarsýn. Þrátt fyrir smæð sína hefur bæjarfélagið ítrekað sýnt að það er tilbúið að taka ákvarðanir sem styrkja samfélagið til lengri tíma. Umræða um rekstur sveitarfélagsins og fjölda stöðugilda er bæði eðlileg og nauðsynleg, enda mikilvægt að fara vel með sameiginlegt fé. En þegar rætt er um launakostnað þarf líka að horfa á hvað felst raunverulega í honum og hvaða verðmæti liggja þar að baki.

Stærsta rekstrareining sveitarfélagsins er Grunnskóli Bolungarvíkur og þar vegur launakostnaður þungt, líkt og í flestum sveitarfélögum landsins. Það skýrist meðal annars af því að í skólanum starfar hátt hlutfall fagmenntaðra kennara. Það eru ekki veikleikar í rekstri — heldur styrkleiki samfélagsins. Menntaðir kennarar eru ein mikilvægasta fjárfesting sem sveitarfélag getur lagt í, enda hefur gæði menntunar bein áhrif á framtíð barna, líðan þeirra og möguleika. Í Grunnskóla Bolungarvíkur eru um 140 nemendur. Í litlu samfélagi skiptir miklu máli að hvert barn fái tækifæri til að njóta sín og fái þann stuðning sem það þarf. Í skólanum eru 4 stuðningsgildi á yngsta stigi, 1 á miðstigi og 2 á elsta stigi. Stuðningur inn í bekki er því ekki munaður heldur markviss leið til að tryggja betra námsumhverfi, meiri ró í skólastarfi og aukin tækifæri fyrir alla nemendur.

Skólakerfið í dag stendur frammi fyrir fjölbreyttari verkefnum en áður. Nemendur hafa mismunandi þarfir, bæði námslegar og félagslegar, og kennarar þurfa að sinna fjölbreyttum hópi barna á sama tíma. Með stuðningi inni í bekkjum er hægt að mæta þessum þörfum fyrr og betur, áður en vandamál verða stærri og erfiðari viðfangs. Slíkur stuðningur gagnast ekki aðeins þeim börnum sem þurfa mest á honum að halda heldur öllum bekknum. Hann skapar betri vinnufrið, meiri samfellu í kennslu og eykur líkurnar á því að börn upplifi öryggi og vellíðan í skólanum. Það styður jafnframt við kennarana og gerir þeim kleift að sinna starfi sínu af meiri gæðum. Í litlu samfélagi sjást áhrif góðs skólastarfs fljótt. Þegar fjárfest er í börnum, menntun og snemmtækum stuðningi er verið að byggja sterkari samfélag til framtíðar. Það er því mikilvægt að horfa ekki eingöngu á kostnaðinn í excel-skjali heldur líka á þann ávinning sem skapast fyrir börnin, fjölskyldurnar og samfélagið allt.

Einnig þarf að hafa í huga að kjarasamningar Kennarasambands Íslands frá 2023-2024 höfðu veruleg áhrif á launakostnað sveitarfélaga um allt land. Þær hækkanir sem þar komu fram eru því ekki sérstakt einkenni Bolungarvíkur heldur hluti af landsvísu þróun. Þegar tölur um hækkandi launakostnað eru lagðar fram er mikilvægt að setja þær í rétt samhengi og gera sér grein fyrir því að þar er að stórum hluta verið að ræða lögbundna þjónustu og kjör fagfólks sem samfélagið reiðir sig á.

Bolungarvík hefur á undanförnum árum sýnt skýra framtíðarsýn í málefnum barna og fjölskyldna. Bæjarfélagið var snemma í innleiðingu farsældarlaganna sem tóku gildi á Íslandi árið 2021. Markmið laganna er að tryggja að börn og foreldrar sem þurfa á stuðningi að halda hafi greiðan aðgang að samþættri og samfelldri þjónustu við hæfi, án þess að mæta hindrunum innan kerfisins. Ráðið var í starf Málstjóra farsældar barna og sýndi Bolungarvíkurkaupstaður þar með í verki að velferð barna og fjölskyldna skiptir máli. Slík nálgun er ekki aðeins mannúðleg heldur líka skynsamleg fjárfesting til framtíðar.

Rebekka Líf Karlsdóttir

skipar 3. sæti á K- lista Máttar manna og meyja

©2018 by Máttur meyja og manna. Proudly created with Wix.com

bottom of page