top of page

Stefán Línberg Halldórsson

Tæknistjóri hjá Arctic Sea Farm

11-Stefán.jpg

Stefán Línberg Halldórsson situr í 13. sæti MMM.


Ég er fæddur og uppalinn Bolvíkingur og hef búið hér í nær 32 ár. Það segi ég með stolti. Ég hef starfað við fjölbreytt störf sem öll tengjast sávarútvegi á einn eða annan hátt. Á unglingsárum vann ég á fiskmörkuðum bæjarins. Síðar starfaði ég sem stálsmiður hjá 3X Technology í 11 ár, þar sem ég ferðaðist meðal annars víða um heim við uppsetningu á fiskvinnslubúnaði. Í dag starfa ég hjá Arctic Fish sem tæknistjóri í laxasláturhúsinu Drimlu niðri á Brjót. Ég er lærður meistari í stálsmíði frá Menntaskólanum á Ísafirði. Ég hef staðið vaktina í Slökkviliði Bolungarvíkur í 10 ár. Ég hef verið 6 ár í stjórn Verkalýðsfélags járniðinaðarmanna á Ísafirði. Sambýliskona mín er Þórdís Björnsdóttir, rafvirki og menntaður hljóðmaður. Saman eigum við son okkar, Árna Línberg Stefánsson. Helsta áhugamál fjölskyldunnar er hestamennska. Hér vill ég að sonur okkar alist upp og að hann geti eftir 32 ár sagt með sama stolti að hann sé fæddur og uppalinn Bolvíkingur. Mín helstu áherslumál eru uppbygging á fjölbreyttu atvinnulífi og að skapa tækifæri fyrir alla, óháð menntun og bakgrunn . Ég vil einnig stuðla að eflingu slökkviliðsins og styrkja öryggismenningu í samfélaginu.

©2018 by Máttur meyja og manna. Proudly created with Wix.com

bottom of page