top of page

Karen Arna Hannesdóttir

Rafvirki hjá Orkubúi Vestfjarða

2-Karen.jpg

Karen Arna Hannesdóttir situr í 4. sæti K-lista MMM.
 

Karen Arna Hannesdóttir heiti ég og flutti til Bolungarvíkur árið 2014, þar sem mér hefur liðið afar vel síðan. Ég er alin upp í Eyjafjarðarsveit og bjó einnig um tíma á suðvesturhorninu áður en ég ákvað að flytja vestur. Ég er í sambúð með Auðuni Elvarssyni og á þrjú börn á grunn- og framhaldsskólaaldri. Að mínu mati eru það mikil forréttindi fyrir börn að alast upp úti á landi, og því reyndist mér ekki erfitt að taka ákvörðun um að setjast að á landsbyggðinni.

Frá því ég flutti til Bolungarvíkur hef ég starfað hjá Orkubúi Vestfjarða og gegni í dag starfi rafvirkja á eftirlitsdeild fyrirtækisins. Ég er ný í stjórnmálum en legg áherslu á að vera dugleg, samviskusöm og leggja mig fram í þeim verkefnum sem mér eru falin.

Í frítíma mínum nýt ég þess að vera úti við, einkum í garðinum þar sem ég hef mikinn áhuga á ræktun og umhirðu umhverfisins. Umhverfismál skipta mig miklu máli og ég tel mikilvægt að halda nærumhverfi okkar snyrtilegu, vel skipulögðu og aðlaðandi.

Ég hef einlægan áhuga á að leggja mitt af mörkum til samfélagsins, stuðla að jákvæðri þróun þess og vinna að því að það haldi áfram að vaxa og dafna.

©2018 by Máttur meyja og manna. Proudly created with Wix.com

bottom of page