top of page

Olga Agata Tabaka

Stuðningsfulltrúi

14-Olga.jpg

Olga Agata Tabaka situr í 8. sæti K-lista MMM.​

Olga Agata Tabaka, gift Gunnlaugi Gunnlaugsyni og saman eigum við tvö börn. Ég kom til Bolungarvíkur frá Póllandi árið 2013. Ég hef unnið í grunnskólanum siðan árið 2016 sem stuðningsfulltrúi á yngsta stigi og kenni listir í heilsuskólanum. Á æskuárum mínum æfði ég dans, fótbolta, leiklist og spilaði tölvuleiki. Ég hef gaman af því að læra nýja hluti og ég fagna nýjum áskorunum og reyni að gera mitt besta í öllu sem ég tek mér fyrir hendur þar sem ég set miklar kröfur á sjálfa mig. Allir sem þekkja mig vita að ég fæddist til að baka. Ég nýt þess að ferðast, lesa bækur, spila borðspil, stunda íþróttir, hitta fólk og auðvitað að borða góðan mat. 

 

#ÉgTreystiEkkiFólkiSemBorðarEkkiSúkkulaði.

Það er alltaf gott að gera góðverk. Er með nokkur lífsmottó eins og t.d. ,,Þú getur gert allt sem þú vilt’’ eða ,,there is no limit to what you can achieve’.

Mitt markmið er að brúa bilið í fjölmenningarsamfélaginu Bolungarvík, styrkja umgjörðina fyrir tómstundarstörf á svæðinu og finna leiðir til að styrkja námsaðstöðu í bænum sem gæti nýst einstaklingum á öllum skólastigum.

©2018 by Máttur meyja og manna. Proudly created with Wix.com

bottom of page