top of page
Hjörtur Traustason
Rafvirki hjá Orkubúi Vestfjarða

Hjörtur Traustason situr í 6. sæti K-lista MMM
Ég heiti Hjörtur Traustason og er fæddur og uppalinn Bolvíkingur. Ég er kvæntur Freydísi Ósk Daníelsdóttur og eigum við saman fjórar dætur. Frá 2018-2022 sat ég í bæjarstjórn og í tvö ár af því var ég í bæjarráði ásamt því að eiga sæti í hafnarstjórn. Ég vinn hjá Orkubúi Vestfjarða við verkstjórn og rafvirkjun. Ég er nokkrum námskeiðum frá því að klára meistaranám í mínu fagi. Ég hef tekið virkan þátt í félagsstörfum, æskulýðsstörfum og sinnt nefndarstörfum. Tónlist er mikið áhugamál hjá mér ásamt akstursíþróttum. Ég er í geggjaðri hljómsveit sem heitir Óðríki.
Áherslumál mín eru:
Umferðaröryggi,
atvinnumál,
ferðamannamál,
umhverfismál og
fjölskylduvænt samfélag
bottom of page
