
X við K á kjördag fyrir samvinnu, samstarf og samræður. Tölum saman og vinnum saman.
Fyrir kosningarnar 2022
Máttur meyja og manna er framboð sem samanstendur af góðu fólki sem er til í að vinna Bolungarvík til heilla. Við viljum sjá að unnið sé að framtíðarsýn Bolungarvíkur. Við sem búum hérna værum ekki að fjárfesta í fasteignum ef við hefðum ekki trú á okkar bæjarfélagi. Við trúum því einnig að Bolungarvík hafi gríðalega mikið aðdráttaafl, við þurfum bara að gera það sýnilegra og markaðsetja það betur á landsvísu og víðar. Þess vegna teljum við umhverfismál vera mikilvægann lið í því. Með fegrun bæjarins, bættum götum og gangstéttum þá verður sýnin á bæinn meira heillandi, og sýnir líka að okkur þykir vænt um bæinn okkar. En til þess að þetta sé möguleiki þá þurfum við meiri atvinnu. Með atvinnu aukast tekjur bæjarins er þá enn meiri möguleiki til framkvæmda. Síðan göngin komu hefur verið talað um Bolungarvík og Ísafjarðarbæ sem eitt atvinnusvæði – það vantar einn mikilvægan hlekk, það eru samgöngumálin. Það eru einstaklingar á öllum aldri í Bolungarvík sem starfa eða eru í námi á Ísafirði en hafa annað hvort ekki ökuréttindi eða bíl til umráða og þurfa því alfarið að treysta á vini og vandamenn, því samgöngurnar sem eru í boði núna eru það takmarkaðar að þær henta ekki. Með bættum samgöngum væru allir sjálfstæðari til að sækja sér atvinnu, þjónustu og/eða félagslíf. Okkur yngra fólkinu ber skylda til að veita eldri íbúum þjónustu í hæðsta gæðaflokki. Þetta er fólkið sem ruddi brautina fyrir okkur að svo mörgu leyti. Og fyrir það eigum við að vera þakklát og sýna það í verki.
Við þurfum að vera með ábyrga fjármálastjórnun. Það er ekki langt síðan við í Bolungarvík vorum á gjörgæslu hjá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, sá tími gleymist ekki auðveldlega. Við vorum ekki sjálfráð um framkvæmdir, viðhald né annað sem snýr að fjármálastýringu. Það eru því engin geimvísindi að við þurfum að fara vel með peningana okkar og fjárfesta skynsamlega. Það gerum við líka með auknu íbúðalýðræði og gagnsærri stjórnsýslu því íbúar Bolungarvíkur eiga að vera vel upplýstir um forgangsröðun framkvæmda í bæjarfélaginu og eiga að fá að koma skoðunum sínum á framfæri. Það er einnig mín skoðun að íbúar eiga að hafa kost á því að vera vel upplýstir um það sem fer fram í stjórnsýslunni því Bolungarvík væri ekki til ef ekki væri fyrir íbúana.
X við K á kjördag, fyrir samvinnu, samstarf og samræður – tölum saman, vinnum saman.
Sigríður Hulda, oddviti Máttar meyja og manna
