top of page

Helga Jónsdóttir

Deildarstjóri við Grunnskóla Bolungarvíkur

12-Helga.jpg

Helga Jónsdóttir vermir 10. sæti K-lista MMM.

 

Ég heiti Helga Jónsdóttir og bý í Bolungarvík. Ég hef lengstan hluta fullorðinsáranna búið hér með sambýlismanni mínum og eigum við fjögur börn og fjögur barnabörn. Auk þess er ég svo heppin að foreldrar mínir búa hér einnig sem gefur mér skýra sýn á mikilvægi góðs samfélags fyrir ólíkar kynslóðir. Ég hef lengi starfað í grunnskólanum, bæði sem kennari og í stjórnunarhlutverki tengdu stoðþjónustu og farsæld barna. Reynslan hefur kennt mér hvað skiptir máli í daglegu starfi og hvernig ákvarðanir móta aðstæður fólks og tækifæri. 

 

Áherslumál mín eru velferðarmál, umhverfismál, atvinnumál og húsnæðismál. Ég býð mig fram fyrir Mátt manna og meyja - XK vegna þess að ég vil leggja mitt af mörkum til skynsamlegra ákvarðana og áframhaldandi þróunar í bænum.

©2018 by Máttur meyja og manna. Proudly created with Wix.com

bottom of page