Guðfinnur Ragnar Jóhannsson
Rafvirki hjá Orkubúi Vestfjarða og varabæjarfulltrúi

Guðfinnur Ragnar Jóhannsson situr í 1. sæti á K-lista MMM.
Guðfinnur Ragnar heiti ég og skipa 1. Sæti. Ég er fæddur 31. maí 1998 og uppalinn á Ströndum, nánar tiltekið á Drangsnesi og á Hólmavík, en flutti vestur til Bolungarvíkur árið 2013.
Ég er menntaður vélfræðingur, með meistararéttindi í vélvirkjun, sveinspróf í rafvirkjun og stefni á að klára meistarabréf í rafvirkjun núna í vor. Ég starfa hjá Orkubúi Vestfjarða í Mjólkárvirkjun þar sem ég vinn við rekstur og stjórnun orkukerfisins.
Frá unga aldri hef ég tekið virkan þátt í samfélaginu, sérstaklega í björgunarsveitinni Erni, þar sem ég hef meðal annars verið umsjónarmaður unglingadeildarinnar. Það starf er bæði gefandi og skemmtilegt og hefur kennt mér mikið.
Ég bý í Bolungarvík með kærustu minni, Hönnu Þóreyju Björnsdóttur, og sjáum við framtíð okkar hér. Það skiptir mig miklu máli að halda áfram að byggja upp samfélag þar sem gott er að búa, starfa og ala upp börn.
Á síðasta kjörtímabili hef ég fengið dýrmæta reynslu í sveitarstjórnarmálum sem formaður umhverfismálaráðs og varamaður í bæjarstjórn. Sú reynsla hefur styrkt mig í þeirri trú að ég geti lagt enn meira af mörkum.
Helstu áherslumál mín eru ábyrg fjármálastjórnun, atvinnumál, skipulagsmál og aukið samtal við bæjarbúa. Ég legg áherslu á heiðarleg vinnubrögð, gott samstarf, opið samtal og trúi því að með samstilltu átaki getum við haldið áfram að gera Bolungarvík að enn betri stað til að búa á.
