top of page

Staðreyndir málsins

Mig langar að setja fram nokkrar staðreyndir um fjárhag sveitarfélagsins, þar sem því hefur verið haldið fram að skuldir hafi hækkað um 700 milljónir á kjörtímabilinu. Ég ætla ekki að véfengja þá tölu, en finnst mikilvægt að setja hana í samhengi. Það er rétt að skuldir hafa hækkað í krónum talið. Hluti af þeirri hækkun skýrist af verðbólgu, Þar sem flest lán sveitarfélagsins eru verðtryggð. Það þýðir að skuldir hækka sjálfkrafa með verðlagi, svipað og margir þekkja af eigin húsnæðislánum.

Á sama tíma hefur verið farið í umfangsmiklar og löngu tímabærar framkvæmdir. Þar má nefna endurnýjun vatnsveitu með nýjum vatnstanki og hreinsistöð í Hlíðardal, skipulagningu og uppbyggingu nýs Lundarhverfis, framkvæmdir við Völusteinsstræti þar sem lagnir voru endurnýjaðar og malbikað (sem verður klárað í sumar) uppbyggingu sandfangara við höfnina, auk endurbóta á loftræstingu í íþróttahúsinu (Musterinu) og tengingu loftræstingar í skólanum sem hafði ekki verið tengd frá byggingu hans. Þetta eru fjárfestingar í innviðum sem styrkja samfélagið til framtíðar og skila tekjum, meðal annars í formi vatns- og fasteignagjalda.

Við tókum meðvitaða ákvörðun um að fara í þetta viðhald og uppbyggingu núna, frekar en að láta innviðina grotna niður. Þessi stóra framkvæmdalota hækkaði skuldir tímabundið árið 2024 en við erum þegar byrjuð að snúa þróuninni við. Óútgefinn ársreikningur fyrir árið 2025 sýnir rúmlega 60 milljóna króna rekstrarafgang og fjárhagsáætlun 2026 gerir ráð fyrir að sá afgangur verði um 135 milljónir. Við erum því að vinna markvisst að því að lækka skuldir.

Spurningin er alltaf sú: við getum lækkað skuldir hraðar en þá á kostnað framkvæmda og viðhalds. Það er ekki raunhæft til lengri tíma þegar viðhaldsþörf er mikil. Það er líka athyglisvert að í gegnum allt þetta ferli hefur minnihlutinn aldrei kosið gegn þessum framkvæmdum eða bókað andstöðu við þeim. Það sýnir að í bæjarstjórn hefur ríkt góð samstaða um að þetta séu réttu skrefin fyrir sveitarfélagið.

Guðfinnur Ragnar Jóhannsson, oddviti Máttar meyja og manna. 

©2018 by Máttur meyja og manna. Proudly created with Wix.com

bottom of page