Guðbergur Ingólfur Arnarson
Rafeindavirki hjá Rafverk

Guðbergur Ingólfur Arnarsson skipar 12. sæti K-lista MMM.
Guðbergur Ingólfur Arnarsson, giftur Nikólínu Beck Þorvaldsdóttir og saman eigum við 4 börn og 8 barnabörn. Ég er fæddur í Hafnarfirði árið 1970 og flyt til Bolungarvíkur þegar ég er 5 ára gamall og geng hér í grunnskóla og menntaskóla. Ég hef sinnt mörgum störfum í gegnum lífsleiðina og rak meðal annars fyrirtækið Særaf ehf til 20 ára. Í dag starfa ég sem rafeindavirki hjá Rafverk Alberts Guðmundssonar. Ég er með sveinspróf í rafeindavirkun, smáskipapróf og stúdentspróf. Ég hef gaman að ferðalögum, sérstaklega tjaldútilegum og gönguferðum, að skoða náttúruna og nýja staði. Ég brenn fyrir atvinnumálum og hafnarmálum.
Ég er lausnamiðaður og jákvæður og nýti mér þá kosti til að sjá Bolungarvík vaxa inn í framtíðina.
