top of page
1-Magnús.jpg

Samstarf sveitarfélaga á Vestfjörðum

Við í MMM höfum stóraukið samstarf við sveitarfélögin á Vestfjörðum á kjörtímabilinu. Við rekum nú sameiginlegan slökkviliðsstjóra með Ísafjarðarbæ og Súðavíkurhreppi og Velferðarþjónusta Vestfjarða hefur tekið yfir málefni fatlaðra og barnaverndar á öllum Vestfjörðum. Farsældarráð Vestfjarða hóf starfsemi á síðasta ári og Ungmennaráð Vestfjarða hefur einnig verið mjög virkt á tímabilinu. Vestfjarðastofa hefur unnið að framtíðaráætlunum fyrir öll sveitarfélögin á Vestfjörðum eins og t.d. Strandsvæðaskipulag Vestfjarða, Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs á Vestfjörðum og Svæðisskipulag Vestfjarða, svo eitthvað sé nefnt, og hafa kjörnir fulltrúar okkar verið duglegir að taka þátt í þessari vinnu.

Við í MMM höfum einnig hug á frekara samstarfi við sveitarfélögin á Vestfjörðum og stefnum á það að ganga til samninga um sameiginlega almannavarnanefnd á norðanverðum Vestfjörðum og opna meðal annars á umræðuna um sameiginlega skólaskrifstofu. Við þurfum einnig að fara í mjög svo tímabæra umræðu með sveitarfélögunum við Djúp um rekstur og uppbyggingu íþróttamannvirkja á svæðinu. Hver er framtíðarsýnin í íþróttamálum næstu 25 ár, eða jafnvel 50 árin?

Við höfum einnig staðið vörð um þær stofnanir sem sveitarfélögin koma sameiginlega að rekstri hér á svæðinu. Nærtækast okkur eru bæði Náttúrustofa Vestfjarða og Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða sem báðar hafa átt við í vök að verjast á kjörtímabilinu. Ég sjálfur hef lagt fram ályktanir sem voru samþykktar á fjórðungsþingum á kjörtímabilinu um báðar þessar stofnanir. Mér finnst alvarlegt að ríkið dragi lappirnar í fjárhagslegum stuðningi sínum við þessar stofnanir, útdeili ekki verkefnum og tekjum réttlætanlega milli stofnana og svo er stefnt að sameiningu stofnana sem mun að öllum líkindum veikja starfsemi þeirra og færa bæði ákvarðanatöku og sérhæfða þekkingu burt frá svæðinu. Þarna þurfum við að standa fast í lappirnar og krefjast þess að þessi störf verði áfram unnin hér á svæðinu og starfsstöðvarnar efldar frekar en að dregið verði úr.

Magnús Ingi Jónsson, skipar 2 sæti á K - lista Máttar meyja og manna.

©2018 by Máttur meyja og manna. Proudly created with Wix.com

bottom of page