top of page

Sigtryggur Benedikt Stefánsson

Verkefnastjóri hjá NORA Seafood

8-Sigtryggur.jpg

Sigtryggur Benedikt Stefánsson vermir 7. sæti á K-lista MMM.
 

Sigtryggur Benedikt Stefánsson heiti ég og er fæddur á Akureyri, uppalinn í Mosfellsbæ og flutti vestur í Bolungarvík árið 2017. Ég vinn sem verkefnastjóri hjá NORA Seafood á Ísafirði þar sem ég kem að krefjandi verkefnum sem snúa að fiskvinnslu og sölu. 

Ég á þrjú börn í grunn- og leikskóla með Hildi Maríu. Ég er ánæðgur með að börnin okkar fái að alast upp í þessu umhverfi hér í Bolungarvík því það skiptir máli að haldið sé vel utan um þau. Ég vil leggja áherslu á það að byggja upp betri aðstöðu fyrir íþróttir og tómstundir á svæðinu til þess að börnin okkar hafi sömu tækifæri og börn í stærri sveitarfélögum. 

Ég vil halda áfram að fjölga atvinnutækifærum í sveitarfélaginu og styðja við frekari íbúðauppbyggingu því það mun styðja við frekari íbúafjölgun og sterkara bæjarfélag. 

Mín helstu áherslumál eru: 

Innviðir og atvinnumál,

Fræðslumál,

velferðarmál,

húsnæðis- og skipulagsmál. 

©2018 by Máttur meyja og manna. Proudly created with Wix.com

bottom of page