Katrín Ugla Kristjánsdóttir
Tannlæknir

Katrín Ugla Kristjánsdóttir skipar 6. sæti K-lista MMM
Ég heiti Katrín Ugla og býð mig fram í 6. sæti á K-listanum í Bolungarvík. Ég er kannski ekki mjög pólitísk manneskja en ég er mjög lausnamiðuð. Sem tannlæknir vinn ég út frá rannsóknum og faglegu mati. Ég skoða stöðuna, met hvað virkar best og framkvæmi út frá því. Þetta er nálgun sem ég tek líka með mér inn í samfélagsmál.
Ég flutti til Bolungarvíkur árið 2022 með fjölskyldunni minni og stofnaði Vesturbros frá grunni með Rebekku Líf. Þar störfum við sex í dag. Ég á þrjú börn í leik- og grunnskólanum og mér finnst ótrúlega dýrmætt að vera umkringd börnum og öflugu fjölskyldulífi. Ég er mikil félagsvera og elska að vera hluti af lifandi samfélagi. Ég les mikið, hlusta á bækur og þegar ég kemst út að hlaupa líður mér best. Stelpurnar mínar eru heppnar að fá að alast upp hér, í litlu samfélagi þar sem fólk þekkir þær, styður þær og þar sem þær fá mögnuð tækifæri til að vaxa og verða þær sjálfar.
Ég lærði tannlæknisfræði við Háskóla Íslands og í mínu starfi skiptir mig miklu máli að allir fái sömu faglegu og sanngjörnu meðferð óháð því hverjir þeir eru eða hvaðan þeir koma. Það er einfaldlega grundvöllur fyrir trausti. Rætur mínar liggja hingað. Foreldrar mínir eru héðan og þeirra foreldrar líka. Mér þykir vænt um Bolungarvík, menningararfinn, fólkið og samfélagið sem hér hefur byggst upp. Bolungarvík er fjölbreytt samfélag og þannig á það að vera. Enginn á að vera skilinn út undan eða verða undir. Fyrir mér snýst þetta fyrst og fremst um fólk. Jafnrétti skiptir mig miklu máli: Að allir hafi jöfn tækifæri sama hver þú ert eða hvaðan þú kemur. Allir eiga rétt á að njóta sín og taka þátt í samfélaginu okkar.
Gildin mín passa vel við Mátt meyja og manna, samvinna, traust og raunverulegar lausnir. Kærasti minn er á öðrum lista og mér finnst það í raun bara endurspegla lífið eins og það er. Við erum ólík, hugsum ekki alltaf eins en viljum bæði það sama: gott samfélag. Kannski er kominn tími á að horfa meira á fólk og hugmyndir en línur á milli. Þetta snýst ekki um flokka – þetta snýst um samstarf við rekstur Bolungarvíkur.
Hverjum treystið þið til þess?
