Unnur Eyrún Mörthudóttir
Líftæknifræðingur hjá Kerecis

Unnur Eyrún Mörthudóttir situr í 11. sæti K-lista MMM.
Ég heiti Unnur Eyrún Mörthudóttir og er í 11. sæti á lista MMM.
Þrátt fyrir að hafa að mestu alist upp á Ísafirði þá byrjaði ég ævina í Bolungarvík og eyddi ófáum dögum með ömmu og afa á Vitastígnum. Ég hef alltaf sagst vera Bolvíkingur og er mjög stolt af því.
Þessa dagana er ég að leggja lokahönd á nám í líftækni við Háskólann á Akureyri sem er önnur bakkalárgráðan mín. Árið 2022 lauk ég námi í sviðslistum í Noregi og flutti svo heim til Íslands vorið 2023. Samhliða náminu starfa ég sem sérfræðingur í vöruþróun hjá Kerecis á Ísafirði. Ég hef þann eiginleika að eiga erfitt með að slaka á og hef því yfirleitt nóg fyrir stafni. Ég er meðal annars umsjónarmaður í Unglingadeildinni Erni, vinn reglulega í félagsheimilinu, hef gaman af hreyfingu og nýt þess að vera í kringum fólkið mitt.
Þegar ég flutti heim frá Noregi fannst mér nokkuð augljóst að koma til Bolungarvíkur. Hér hafði ég unnið í Einarshúsi nánast hvert einasta sumar síðan 2018, amma og afi búa hér og tengingin við bæinn var þegar sterk. Samfélagið tók mér heldur betur vel og ég fann fljótt að ég væri á réttum stað. Fyrir um ári keyptum við Jón, kærasti minn, hús á Völusteinsstræti og staðfestum þar með að Bolungarvík væri staðurinn þar sem við viljum byggja upp okkar líf og framtíð.
Það skiptir mig miklu máli að taka virkan þátt í samfélaginu sem hefur tekið mér svona vel og leggja mitt af mörkum til að byggja það enn frekar upp. Ég hef sérstakan áhuga á æskulýðsmálum, íþróttamálum, umhverfismálum og menningarmálum. Mér hefur þótt einstaklega gaman að vinna með unga fólkinu í bænum í gegnum unglingadeildina og öðrum bæjarbúum á viðburðum í félagsheimilinu og Einarshúsi. Sú reynsla hefur styrkt áhuga minn á samfélagsmálum og ég tel að hún nýtist vel í því að leggja mitt af mörkum fyrir Bolungarvík.
Bolungarvík er staðurinn sem ég að vera á til frambúðar og ég vil taka þátt í að gera gott samfélag enn betra.
